Ég er dálítið hnugginn. Hef raunar verið hnugginn um skeið. Ég varð hnugginn við að fylgjast með umræðunni í aðdraganda nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu. Fljótlega eftir að baráttan hófst byrjaði að leita á mig lína úr leikritinu Macbeth eftir Shakespeare, hið kalda mat Macbeths á lífinu þegar hann fréttir að eiginkona hans sé dáin og óvinaherir nálgast kastala hans: “It is a tale told by an idiot, full of sound and fury, signifying nothing.”
Mér finnst þessi orð fanga kosningabaráttuna fullkomlega. Heift, læti og lítið innihald. Það var vissulega fólk sem vandaði sig og reyndi af veikum mætti að leggja eitthvað innihaldsríkt og málefnalegt til málanna. Það drukknaði hins vegar í flóði af froðu. Þetta var einhverskonar froðudiskó dauðans, dauða hugsunar og heilinda.
Ég fékk sterka óraunveruleikatilfinningu þegar ég horfði á forsætisráðherra reyna, á blaðamannafundi, að finna eitthvað gildi í því sem hafði gerst: almenningur hafði rætt utanríkismál á hærra plani en áður hafði gerst. Hljómaði eins og hún og hinar valkyrjurnar hefðu stigið niður frá Ásgarði og betrað okkur sótsvartan almúgan með þessum gjörningi sínum.
Það er ekki það sem valkyrjur gera þegar þær heimsækja Miðgarð og þetta var æði langt frá því hvernig ég upplifði kosningabaráttuna. Ég upplifði þetta sem eitthvað sem ríkisstjórnin hefði lagt á þjóðina án nægjanlegs undirbúnings. Afleiðingin var skautun og skítkast sem ég óttast að varpi löngum skugga á íslenska pólitík. Þannig að ég er dálítið hnugginn.



